|
Skrifað af: Sigríður Ingibjörnsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 04. janúar 2011 19:55 |
Vatnsnestorg
 |
Eins og vegfarendur hafa eflaust tekið eftir er búið að setja upp myndarlegan gosbrunn á Vatnsnestorgi. OSN ehf hafa séð um innkaup og uppsetningu á þessum brunni ásamt tæknilegri útfærslu. Brunnurinn er fengin frá OASE GmbH í Þýskalandi, en þeir eru meðal fremstu framleiðenda á gosbrunnum og búnaði þeim tengdum.
Brunnurinn er samsettur af 12 stútum sem mynda tveggja metra radíus og tvö ljós lýsa hvern stút upp. Þannig myndar hann 12 gosstróka hver um það bil 1.6m – 2m hár.
|
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. mars 2012 13:23 |